Jólalög fyrir píanó 1.-3. hefti
Íslensk og erlend jólalög í einföldum og aðgengilegum útsetningum fyrir píanó. Í 3. heftinu eru 17 lög, útsett fyrir tvær hendur (einleik). Útsetningarnar eru hugsaðar fyrir nemendur í grunn- til miðnámi í píanóleik (3.-4. stig). Textar fylgja flestum lögunum.
Höfundur: Björgvin Þ. Valdimarsson (samval, kennslufræði og útsetningar)
Nótnaútgáfa BÞV – 1995/2021 – ISMN: 9790902031622 – A4 – 32 bls.
Ave María – Á jólunum er gleði og gaman – Dansaður vindur – Ding dong – Eitt lítið jólalag – Ég sá mömmu kyssa jólasvein – Gefðu mér gott í skóinn – Heims um ból – Hin fyrstu jól – Jólasnjór – Litla jólabarn – Nóttin var sú ágæt ein – Ó, helga nótt – Slá þú hjartans hörpu strengi – Snæfinnur snjókarl – Vetrarsól – Við óskum þér góðra jóla – Það snjóar