ISMN er alþjóðlegur staðall fyrir nótnaútgáfu. Skammstöfunin stendur fyrir International Standard Music Number sem er staðall númer 10957 frá alþjóðlegu staðlastofnuninni ISO. ISMN kerfið er systurkerfi ISBN kerfisins og er eingöngu ætlað til að auðkenna nótur og nótnatengda útgáfu.

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn annast úthlutun ISMN númera fyrir íslenska nótnaútgáfu og ber jafnframt ábyrgð á kynningu og útbreiðslu kerfisins hér á landi. Hver útgefandi getur fengið númeraröð með útgefendatölu sinni eða stök númer fyrir einstaka útgáfu. Úthlutun og upplýsingaþjónusta er veitt útgefendum að kostnaðarlausu. Gerð er skrá yfir íslenska tónlistarútgefendur sem er hluti af alþjóðlegri skrá, Music Publishers International ISMN Database http://www.ismn-international.org/directory.php

Ekki á að nota ISBN númer á nótur eða nótnabækur. Hafi nótnabók fengið ISBN númer skal nota ISMN númer sé hún endurprentuð eða endurútgefin. ISMN númerum má úthluta afturvirkt og er það æskilegt sé hægt að koma því við. Skilgreina má nótna- eða söngbækur með miklum texta og myndskreytingum sem venjulegar bækur og geta þær því einnig fengið ISBN númer.

ISMN leiðbeiningar (pdf)