Gítar
Söngdansar II
Frumútgáfa af 16 vönduðum píanóútsetningum Carls Billich og Magnúsar Ingimarssonar á sönglögum Jóns Múla og Jónasar Árnasona úr söngvaleikjunum Allra meina bót og Deleríum búbónis.
Hljómabókstafir eru yfir nótunum sem nýtist fyrir flest hljómaspilshljóðfæri. Laglínan er að jafnaði efsta rödd í útsetningunum og textar þar yfir.
Höfundar: Jón Múli Árnason og Jónas Árnason
Nótuútgáfan – 1996/2004 – A4 – 37 bls. Um útgefandann
Fæst hjá Tónastöðinni og í netverslun Nótuútgáfunnar
Sönglögin okkar – Gítar
100 þjóðþekkt sönglög tónsett fyrir viðkomandi hljóðfæri. Bókin er gott ítarefni í hljóðfæranámi eða almennum hljóðfæraleik. Lögin eru innlend og erlend – þjóðlög, ættjarðarsöngvar, sálmar og dægurlög. Bókstafahljómar eru við lögin en ekki söngtextar.
Höfundur bókar: Jón Aðalsteinn Þorgeirsson (samval, framsetning, nótur, umbrot)
Höfundarútgáfa – 2009 – A4 – 39 bls. Um útgefandann
Tuttugu og átta íslensk jólalög
28 af vinsælustu jólalögum og -textum undanfarinna áratuga í aðgengilegum hljómasetningum við hvert lag. Textar, hljómar og gítargrip í handhægu vasahefti fyrir gítarspilara.
Samval og framsetning: Ingvar Jónsson og Kristján Viðar Haraldsson
Báðir – 2004 – A6 – 40 bls. (bókasöfn)
Fæst hjá Tónastöðinni og í netverslun Nótuútgáfunnar.